Metfjöldi kylfinga tók þátt í 13. golfmóti knattspyrnudeildar, Breiðablik OPEN, sem fram fór á Selsvelli við Flúðir s.l. föstudag. Uppselt var í mótið og þurftu nokkrir kylfingar frá að hverfa.

Veðurguðirnir voru í banastuði eins og fyrri daginn, 14°C hiti og hægviðri ef undan er skilinn fyrirsjánalegur en hagli blandinn síðdegisskúr sem var jafn ákafur og hann staldraði stutt við. Bleytti vel í þeim sem ekki voru með regnvarnirnar á hreinu en allir komu þurrir í hús. Sem sagt frábært veður, eins og lofað var.

En kylfingar voru ekki bara margir heldur voru margir þeirra líka í banastuði og með stórbrotin tilþrif. Sem dæmi má nefna að litlu munaði að það kæmi hola í höggi á 11. braut, eins og sjá má hér fyrir neðan.

Þegar leik var lokið og gengið hafði verið frá skorkortum hófst svo mikil Pizza veisla og var þar handagangur í öskjunni þegar 80 svangir kylfingar hesthúsuðu á 4. tug vel útilátinna og gómsætra Pizza sem bakaðar voru á staðnum. Því næst var hefðbundin verðlaunaafhending og loks var dregið úr fjölda skorkorta um fjölmarga glæsilega vinninga.

Úrslit voru sem hér segir:

Punktakeppni karla:

1.sæti    Bjartmar Birnir
2.sæti    Gunnar Gylfason
3.sæti    Björn Bergsteinn Guðmundsson

Punktakeppni kvenna:

1.sæti    Hólmfríður Sigmarsdóttir
2.sæti    Hlíf Erlingsdóttir
3.sæti    Jórunn Lilja Andrésdóttir

Höggleikur karla:

1.sæti    Sigmundur Einar Másson
2.sæti    Kristján Óli Sigurðsson
3.sæti    Elías Kristjánsson

Höggleikur kvenna:

1.sæti    Ingibjörg Hinriksdóttir
2.sæti    Hólmfríður Hilmarsdóttir
3.sæti    Elín Jóhannesdóttir

Lengstu teighögg á 18. Braut:

Rúnar Örn Grétarsson
Hólmfriður Hilmarsdóttir

Nándarverðlaun :

2.  Magnús Jónsson 240 cm
5.  Hannes Björnsson 610 cm
9.  Kristján Óli Sigurðsson 173 cm
11. Arnaldur Ingvaldsson 7 cm
14. Elías Kristjánsson 322 cm

Mótsstjórn þakkar þátttakendum fyrir frábæran dag, veðurguðunum fyrir sitt framlag og staðarhöldurum að Efra Seli fyrir góðar móttökur sem endranær en þess má geta að mótið hefur verið haldið þar eystra undanfarin 12 ár.

Eftirtaldir aðilar veittu ómetanlegan stuðning við framkvæmd mótsins og eru þeim einnig færðar bestu þakkir.

ÁG
Málning h.f
Icelandair
ORKAN / Skeljungur
BYKO
JAKO
PLT- leikandi lausnir
Aðalstjórn Breiðabliks
Samhentir
GKG
Vörður
Tengi
Ölgerðin
Nói Siríus
Bananar

Áfram Breiðablik !