09.02 2012 10:23

Uppskeruhátíð sunddeildar Breiðabliks

Þriðjudaginn 14. febrúar verður árleg uppskeruhátíð sunddeildar Breiðabliks fyrir árið 2011. Hátíðin verður haldin í samkomusalnum í Smáranum, 2. hæð kl 18:00.
Veitt verða verðlaun í öllum hópum og aldursflokkum.

Verðlaun:
Aldursflokkaverðlaun, 1., 2. og 3. sæti
Árangursverðlaun í karla- og kvennaflokki fyrir 3 stigahæstu sundin
Besta afrek - Stigahæsta sundið
Mesta bæting í sundgrein
Mætingarverðlaun í öllum hópum í Kópavogs- og Salalaug
Garpur ársins, leiðtogi ársins og dómari ársins

Veitingar:
Við höldum sama fyrirkomulagi og hefur verið undanfarin ár, að allir koma með eitthvað hollt og gott á sameiginlegt hlaðborð. Drykkir verða í boði sunddeildarinnar.

Við hvetjum alla í sunddeildinni, sundmenn og foreldra til að mæta.  

Til baka