Mikið um að vera hjá sunddeildinni í nóvember
Það er mikið um að vera hjá sunddeildinni þessa dagana.
Síðasta laugardag þann 5. nóvember var innanfélagsmót fyrir yngri hópana í Kópavogslaug með tímatöku. Það er óhætt að segja að þar hafi verið margir flottir krakkar á ferð og sumir að prófa að keppa í fyrsta sinn. Framtíðin er björt hjá Breiðablik ef marka má góðan árangur á mótinu.
Á miðvikudaginn 9. nóvember verður pastakvöld í Smáranum klukkan 19:00 - 20:30 á annari hæð. Tilefnið er Íslandsmeistaramótið í sundi í 25 metra laug (ÍM25) sem haldið verður í Laugardalslaug 10. til 13. nóvember. Við ætlum að nota tækifærið og fá alla hópana saman, borða saman kvöldmat og kynna þá krakka sem keppa á mótinu.
Einnig ætlum við að veita viðurkenningar til þeirra barna í B, C, D og E hóp sem hafa náð mestum framförum síðan í haust og eru með bestu mætinguna á æfingar hingað til.
Það er flottur hópur blikasundmanna sem mun keppa á ÍM25 og verður spennandi að fylgjast með árangri þeirra en í október gekk þeim mjög vel á Stórmóti SH í Ásvallalaug.
25. - 26. nóvember er svo komið að UMSK mótinu sem fram fer í Kópavogslaug og munu þar etja kappi sundmenn frá sundfélögunum þremur sem eiga aðild að Ungmennasambandi Kjalarnesþings.
Til baka