Brettadeild hefur verið stofnuð innan skíðadeildar Breiðabliks
Brettadeild hefur verið stofnuð innan skíðadeildar Breiðabliks og nú í febrúar fer af stað skipulagt starf hjá brettadeildinni þar sem kennt verður á snjóbretti og snjóbrettafimi er þjálfuð.
Ekki hefur verið skipulagt snjóbrettastarf innan skíðadeilda á höfuðborgarsvæðinu áður en mjög vaxandi ástundun snjóbretta kallar eðlilega á slíkt.
Starfið er byggt upp þannig að bæði byrjendur og þeir sem lengra eru komnir munu fá þjálfun og kennslu í brettafimi.
Snjóbrettastarf er uppsett svipað og tómstunda eða skátaflokkur. Ekki er lögð megináhersla á keppni, heldur frekar á almenna færni og umgengni við fjöllin og skíðasvæði. Kenndur er leikur fyrir lífið. Ýmsir viðburðir munu eiga sér stað í vetur, en starfið endar með hátíð sem kennd er við Andrés Önd og haldin er álega á Akureyri síðla aprílmánaðar.
Aldurshópur:
8-14 ára - Aldursskipting sú sama og í skíðahópum, þó gert einnig út frá getu.
Starfað er frá byrjun febrúar og út apríl með æfingum tvisvar sinnum í viku, 2 tíma í senn. Fyrsta æfing 15. febrúar. Kynningarfundur 13. febrúar.
Æfingar verða: á miðvikudögum kl. 18-20 og laugardögum kl. 11-13
Þátttökugjald/æfingagjald: 21.000 krónur þennan fyrsta vetur.
Niðurgreiðslur sveitarfélaga eiga við hér eins og í öðru íþróttastarfi, s.s. frístundakort o.s.frv. Almennt um 12.000 krónur
Innifalið:
Æfingagjald, æfingar tvisvar í viku 2 tíma í senn
Þátttökugjald í Andrésar Andarleikum (áætlað 6.000 krónur)
Ekki innifalið:
Æfingarkort í Bláfjöll, 7.000 krónur.
Athygli er vakin á því að byrjendur eru hvattir til þess að nýta sér þetta starf til þess að komast af stað á snjóbretti.
Öryggisbúnaður sem allir þurfa að hafa: hjálmur og bakbrynja.
Skráning og fyrirspurnir:
Póstur á : .(JavaScript must be enabled to view this email address)
Póstur þarf að innihalda eftirfarandi:
Nafn og kennitala iðkenda/ snjóbrettara
Upplýsingar um getustig: þ.e. vanur eða óvanur
Nafn og kennitala forráðamanns ásamt símanúmerum þar sem hægt er að ná í forráðamann.
Dæmi: Jón Jónsson kt: 010298-2324 óvanur/nýr,
foreldri: Jón Sigurðsson kt: 020266-6789 GSM: 8961699 Heimasími: 5647890