13.02 2012 09:19

Bikarmót 13-14 ára var um helgina í Bláfjöllum

Nú um helgina var haldið Bikarmót 13-14 ára í Bláfjöllum af aðildarfélögum SKRR. Sökum slæmrar veðurspár fyrir sunnudaginn var allt mótið keyrt á laugardeginum.

Blikar áttu keppendur á verðlaunapalli í aldursflokknum 13 ára. En í svigi 13 ára drengja sigraði Arnaldur Karl Eyjólfsson, Breiðablik og Jón Gunnar Guðmundsson Fram (bliki) varð í þriðja sæti. Hjá stelpunum hafnaði Iðunn Rún Kristjánsdóttir í 6. sæti í sviginu.  Í 14 ára flokknum hjá drengjum hafnaði Egill Snær Birgisson KR í 2. sæti í svigi, en KR er að æfa með Breiðablik og Fram.

Í stórsviginu hjá 13 ára drengjum sigraði svo Jón Gunnar og Arnaldur Karl hafnaði í 5. sæti. Egill Snær KR, varð í 5. sæti í stórsviginu hjá 14 ára drengjum.

Skíðadeildin óskar krökkunum innilega til hamingju með góðan árangur, en hér má sjá öll úrslit mótsins.  http://www.armenningar.is/armenningar/?D10cID=ReadNews&ID=1854

Til baka