31.01 2012 11:09

Agla Jóna sigraði í Austurríki

Í síðustu viku eða þann 26. janúar voru Agla Jóna Sigurðardóttir og Ármannsblikinn Jökull Eyjólfur Einarsson að keppa í Innsbruck í Austurríki á svæði sem heitir Patscherkofel .
Þau kepptu í svigi og gekk þetta framar vonum en Agla sigraði sinn árgang (2000) og Jökull lenti í öðru sæti í sínum árgangi (2000) og telst þetta góður árangur miðað við æfingadaga og aðstæður á Íslandi.
Brautin og færið var mjög krefjandi, en það voru 46 port, 7 metrar á milli porta og mjög þver braut, það voru 59 keppendur í þessari braut.
Skíðadeild Breiðabliks óskar þeim til hamingju með þennan árangur.
 

Til baka