05.04 2011 22:02

6 keppendur Breiðabliks á Skíðamóti Íslands

Blikar á Skíðalandsmóti í Bláfjöllum 2011. Ljósm. Jóhann Jónsson

Breiðablik átti 6 keppendur og elstu menn innan félagsins muna vart eftir því að svo margir hafi keppt fyrir Breiðablik á Landsmóti. Í það minnsta ekki langa lengi.

Á þessari skemmtilegu mynd sem Jóhann Jónsson tók af okkar fólki síðasta daginn, áður en keppt var í samhliða svigi eru f.v. Markús Már Jóhannsson, Erla Ásgeirsdóttir, Agnes Jóhannesdóttir, Katrín Eir Smáradóttir, Oddný Helga Einarsdóttir og fyrir framan er Jón Elí Rúnarsson.

Til baka