03.12 2011 20:34

Stigahæsta liðið á ÍM í réttstöðulyftu

Keppendur Breiðabliks, besta liðið!

Íslandsmeistaramótið í réttstöðulyftu fór fram í dag, 3. desember, í Íþróttahúsi FSu á Selfossi. Mótið var síðasta stórmót þessa árs, og sem slíkt síðasta mótið sem telur til stiga í keppni um kraftlyftingafélag ársins 2011. Eftir Bikarmótið var Breiðablik í þriðja sæti með 140 stig, á eftir Ármanni (153 stig) og Massa (169 stig). Það var því mikil spenna á ÍM í réttstöðulyftu, en Breiðablik sendi 11 efnilega keppendur til leiks sem áttu góðan möguleika á að safna vel í stigapottinn.

Í -63 kg flokki kvenna náði Dagbjört Lind Orradóttir öðru sætinu á eftir Maríu Guðsteinsdóttur (Ármanni), en María vann einnig mótið á WILK-stigum.  Dagbjört bætti eigið Íslandsmet (í unglingaflokki) með 137,5 kg lyftu. Í -72 kg flokki kvenna vann Hulda Waage með 170 kg, en Hulda reyndi einnig hetjulega við bætingu á eigin Íslandsmeti 180 kg. Þar að auki náði Hulda 2. sætinu í WIKS-stigakeppninni með 168 WILKS-stig. Inga Rós Georgsdóttir lenti í þriðja sæti í +84 kg flokki með 120 kg lyftu.

Í karlaflokki var árangurinn álíka glæsilegur. Formaðurinn sjálfur, Halldór Eyþórsson, sigraði -83 kg flokkinn með 252,5 kg og náði þriðja sætinu í WILKS-stigakeppninni með 170,3 WILKS-stig á eftir heimamönnunum Árna Steinarssyni (173,5 WILKS-stig) og Stefáni Blackburn (175,1 WILKS-stig). Fjölmennt var frá Breiðabliki í -93 kg flokki karla, en þar áttum við 4 keppendur. Flokkinn sigraði Freyr Bragason með 235 kg, Gísli Baldur Bragason var í 4. sæti með 212,5 kg, Kristján Sindri Níelsson var í 5. sæti með 192,5 kg og Heiðar Oddur Orrason í því 6. með 190 kg. Í -105 kg  flokki náði Gunnar Hilmarsson 3. sætinu með 250 kg, og Árni Snær Jónsson náði því 6. með persónulegri bætingu 192,5 kg. Yfirþungavigtina sigraði Jens Andri Fylkisson með 255 kg lyftu.

Blikar nældu sér í 65 stig í liðakeppni mótsins og náðu þar með sigri, en naumur var þó sigurinn því heimamenn enduðu með 63 stig. Eftir þetta síðasta stórmót ársins er Breiðablik með 205 stig og þar með næststigahæsta kraftlyftingadeild landsins þetta árið. Massamenn ná hins vegar fyrsta sætinu með 226 stig, annað árið í röð.

Á mótasíðu KRAFT má finna sundurliðuð úrslit.

Til baka