Landsliðslágmörk
Stjórn Kraftlyftingasambands Íslands (KRAFT) birti nýverið á vefsíðu sambandsins landsliðslágmörk fyrir alla flokka. Horft verður til þessara lágmarka við val á fólki sem fær að keppa fyrir hönd Íslands á heims- og álfumótum, en þó segir á vefsíðu KRAFT
"Þó að lágmörkin aðstoði við val í landsliðið, getur landsliðsnefndin tekið tillit til annara þátta í vali sínu, og enginn keppandi á sjálfgefinn rétt á að komast í landsliðið jafnvel þó hann hafi náð lágmörkum,"
svo menn verða menn sennilega, auk þess að lyfta heimsklassaþyngdum, að sýna að þeir hegði sér í anda íþróttahreyfingarinnar og að þeir hafi þroska til að keppa sem fulltrúar sinnar þjóðar.
Birting lágmarkanna mun sennilega eyða að mestu óvissu sem gætt hefur meðal sumra kraftlyftingamanna um það hvaða tölur þeir þurfi að stefna að til að geta á einhverjum tímapunkti komist á alþjóðlegt kraftlyftingamót. Hún mun líklega einnig hafa hvetjandi áhrif á marga iðkendur sem hafa nú einhverjar ákveðnar tölur til að stefna að.
Til baka