Kópavogsmót
KÓPAVOGSMÓT Í [BEKKPRESSU] [KRAFTLYFTINGUM].
Kraftlyftingadeild Breiðabliks heldur árlega „Kópavogsmót [í bekkpressu] [kraftlyftingum]” - á hverju ári - að vor- eða sumarlagi.
Kraftlyftingadeild stefnir að því að halda Kópavogsmót í kraftlyftingum eða í einhverri af sérgreinum kraftlyftingaíþróttarinnar á næsta ári sem einnig telst Íslandsmót í viðkomandi grein.
Þá kann að vera að Kópavogsmót í kraftlyftingum verði alþjóðlegt mót á næsta ári eða næsta ári með löglegu forsamþykki Alþjóða kraftlyftingasambandsins INTERNATIONAL POWERLIFTING FEDERATION (IPF). [Sjá „Reglugerð” hér að neðan].
Fyrsta Kópavogsmótið í bekkpressu fór fram 25. júlí 2009 og fór glæsilega af stað fyrir fullu húsi áhorfenda í „Smáranum”, aðalfélagsaðstöðu Breiðabliks, ungmennafélags, Dalsmára 5, 201 Kópavogi.
Á mótsstað Kópavogsmótsins var boðið upp á veitingar – pönnukökur með rjóma – kaffi o.fl. góðgæti - en einnig voru til sölu æfingabolir og æfingabúningar Kraftlyftingadeildar Breiðabliks.
Hr. Ármann Kr. Ólafsson, forseti bæjarráðs Kópavogs, setti 1. Kópavogsmótið með virðulegum hætti f.h. bæjarstjóra og bæjarstórnar Kópavogs og óskaði Kraftlyftingadeild farsældar í starfi á komandi árum – og var gerður góður rómur að setningarræðu hans [sjá úrdrátt hér að neðan].
Keppni á Kópavogsmót í kraftlyftingum 2009 fór vel fram og vöktu keppendur og þjálfarar þeirra athygli fyrir íþróttamannslega framgöngu.
Það myndaðist skemmtileg stemmning á Kópavogsmótinu 2009 sem kemur m.a. fram á ljósmyndum sem teknar voru á mótinu og hér fylgja með að neðanverðu.
Í þyngdarflokki 56 kg. bætti Eggert Thorarensen (Kraftlyftingadeild Breiðabliks) sitt eigið Íslandsmet sem jafnframt er met í drengjaflokki- og pressaði 55 kg.
Daníel Geir Einarsson (Kraftlyftingadeild UMFS) setti drengjamet í þyngdarflokki 110 kg. - en það telst líka met í unglingaflokki – og pressaði 140 kg.
Rósa S. Haraldsdóttir (Kraftlyftingadeild Breiðabliks) setti Íslandsmet í þyngdarflokki - 60 kg. - og pressaði 40 kg.
María Guðsteinsdóttir (Kraftlyftingadeild Ármanns) bætti sitt eigið met í þyngdarflokki - 67,5 kg. – og pressaði 100 kg.
Stigahæstir keppendur í karla- og kvennaflokkum urðu þau Guðmundur S. Erlingsson (UMFN Massi) og María E. Guðsteinsdóttir (Kraftlyftingadeild Ármanns).
Þau lyftu einnig mestum þyngdum í hvorum kynjaflokki en Guðmundur bekkpressaði sig inn á forstig alþjóðlegrar getu með 212,5 kg – og María pressaði á heimsmælikvarða 100 kg. í bekkpressu.
Þá hlaut Daníel Geir Einarsson frá Selfossi (Kraftlyftingadeild UMFS) nafnbótina „efnilegasti keppandinn" og er ljóst að í þessum 17 ára kraftlyftingadreng er fundið mikið íþróttamannsefni enda setti Daníel drengjamet í bekkpressu á Kópavogsmótinu í bekkpressu.
NÁNAR UM ÚRSLIT KÓPAVOGSMÓTS Í BEKKPRESSU - ÞRÝSTIÐ Á EFTIRFARAND ÞRÝSTIBORÐA:
ÚRSLIT.
UMFJÖLLUN UM KÓPAVOGSMÓTIÐ Í BEKKPRESSU 2009 Í FJÖLMIÐLUM:
Mikil umfjöllun var um Kópavogsmótið í bekkpressu 2009 í íslenskum fjölmiðlum. Þó var miður að Íþróttadeild-RÚV kom ekki á mótsstað til að taka upp þetta sögulega kraftlyftingamót sem fram fær í næst stærsta bæjarfélagi landsins og undir íþróttalögsögu Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands svo og lyfjaeftirlitslögsögu Lyfjaeftirlits ÍSÍ.
UMFJÖLLUN UM KÓPAVOGSMÓTIÐ Á MORGUNBLAÐINU (NETÚTGÁFA) - VEFLYKILL:
http://www.mbl.is/mm/sport/frettir/2009/07/26/fjogur_islandsmet_i_bekkpressu/
Kópavogsmótið í bekkpressu 2009 á FRÉTTAVEF – RÍKISÚTVARPSINS -
http://www.ruv.is/heim/frettir/frett/store64/item291597/
MORGUNBLAÐIÐ – ÍÞRÓTTABLAÐ er með góða umfjöllun í tveimur íþróttafréttaklausum í hægra ysta dálki (ÍÞRÓTTABLAÐ Mbl. bls. 3) - og svo andlitsmynd með mótsfrétt af Maríu E Guðsteinsdóttur.
Einnig ber að geta um umfjöllun á RÍKISÚTVARPIÐ-SJÓNVARP: TEXTAVARP – FRÉTT NR. 314
Umfjöllun á SPORTID.IS – veflykill:
http://www.sportid.is/news/2795/fjogur-Islandsmet-fellu
Þá er umfjöllun um mótið á VÖÐVAFÍKN [vefritstjóri Sunna Hlín Gunnlaugsdóttir = SUNNUMÓTIÐ [stofnað Sunnu Hlín til heiðurs] á vefslóð: http://www.vodvafikn.net
[Þá kom umfjöllun fyrir mótið í Kópavogs-pósturinn, 14. tbl. 15. árg. (2009), bls. 14 – Tvær fréttir: „Kópavogsmótið í bekkpressu” (fyrirsögn fyrri fréttar) – svo og „Kraftur í Thelmu [Ólafsdóttur]” (fyrirsögn síðari fréttar – umfjöllun um glæsilegan árangur Thelmu á EM09 (unglinga))].
Kraftlyftingadeild Breiðabliks og Kópavogsmótið í bekkpressu 2009 eru til umfjöllunar á vefsíðu Kópavogsbæjar (færsla þriðjudaginn 4. ágúst 2009)– sjá veflykil:
og:
http://www.kopavogur.is/index.php?option=com_content&task=view&id=1467997&Itemid=1
Umfjöllun um úrslit mótsins ásamt mynd af Maríu E. Guðsteinsdóttur birtist svo í KÓPAVOGSBLAÐINU, 9. tbl. 5. árg.(ágúst 2009), bls. 14 [umfang einn blaðsíðudálkur].
Sjá veflykil á KÓPAVOGSBLAÐIÐ, 9. tbl. 5. árg.(ágúst 2009) (pdf-skjal): http://www.borgarblod.is/images/pdf/pdf201.pdf
Kraftlyftingadeild Breiðbliks þakkar MORGUNBLAÐINU, KÓPAVOGSBLAÐINU, SPORTID.IS, Kópavogs-póstinum, VÖÐVAFÍKN og FRÉTTAVEF og TEXTAVARPI RÚV fyrir góða umfjöllun um Kópavogsmótið í bekkpressu 2009 – og þá sérstaklega Íþróttadeild MORGUNBLAÐSINS, KÓPAVOGSBLAÐINU og Sunnu Hlín – svo og vefsíðustjóra vefsíðu Kópvogsbæjar – hr. Bent Marinósyni.
===
2. KÓPAVOGSMÓTIÐ 2010:
Hér fylgja veflyklar á umfjöllun um Kópavogsmótið 2010 á vef Kraftlyftingadeildar og áfram í öðrum fjölmiðlum og vefmiðlum o.sv.frv.
„ÚRSLIT: 2. Kópavogsmótið í kraftlyftingum 2010!" - veflykill:
http://www.breidablik.is/frett.php?id_frett=6651&b=1
„KRAFTABLIKAR” í Íþróttaannál RÚV-Sjónvarp 2010!" - veflykill:
http://www.breidablik.is/frett.php?id_frett=7437&b=1
„2. KÓPAVOGSMÓT-2010 í landsfréttum (og vefheimsfréttum)!" - veflykill:
http://www.breidablik.is/frett.php?id_frett=6661&b=1
„Myndband: Júlían J.K. Jóhannsson reynir vel við NL-met drengja á Kópavogsmóti 2010" - veflykill:
http://www.breidablik.is/frett.php?id_frett=6653&b=1
„MYNDIR FRÁ EM-2010 og 2. Kópavogsmóti o.fl. á glæsivef KRAFT-ÍSÍ." - veflykill:
http://www.breidablik.is/frett.php?id_frett=6759&b=1
„2. KÓPAVOGSMÓTIÐ Í KRAFTLYFTINGUM 2010!" - veflykill:
http://www.breidablik.is/frett.php?id_frett=6649&b=1
KÓPAVOGSMÓTIÐ – REGLUGERÐ:
1. grein: Nafn mótsins er „Kópavogsmótið í kraftlyftingum [og – eða] bekkpressu” og er mótið haldið og framkvæmt af Kraftlyftingadeild Breiðabliks.
2. grein: Mótið skal haldið árlega að vor- eða sumarlagi.
3. grein: Mótið er opið mót- opið keppendum úr öllum deildum Breiðabliks - og öllum löglegum íþróttaiðkendum úr kraftlyftingafélögum eða deildum undir lögsögu Kraftlyftingasambands ÍSÍ (KRAFT-ÍSÍ).
4. grein: Keppt er í öllum þyngdarflokkum karla og kvenna til sigurs og verðlaunasætis.
5. grein: Keppt er um stigabikar og stigaverðlaun fyrir 1. sæti (heildarverðlaun) - í opnum flokkum karla og kvenna.
Þegar þátttaka verður nægileg skal keppt sérstaklega um stigabikar í einstökum aldursflokkum en það verður ekki á þessu 2. Kópavogsmóti í bekkpressu 2010.
6. grein: Keppnisgjald skal ákveðið ár hvert af stjórn Kraftlyftingadeildar Breiðabliks. Keppnisgjald fyrir árið 2010 er kr. 2000.
7. grein: Bæjarstjóri Kópavogs eða formaður Breiðabliks, ungmennafélags, hverju sinni er verndari mótsins og skal honum boðið til mótsins til að heiðra íþróttakeppendur og veita þeim verðlaun.
8. grein: Reglur þessar voru fyrst samþykktar og gengu í gildi á stjórnarfundi Kraftlyftingadeildar Breiðabliks þann 2. júlí 2009 og hefur stjórn Kraftlyftingadeildar heimild til þess að breyta reglugerð á löglega boðuðum stjórnarfundum - og gildir einfaldur meirihluti atkvæða stjórnarmanna um framkomnar tillögur um breytingu á reglum þessum.
Kópavogi 2. júlí 2009, með áorðnum br. 24. júlí 2009, með áorðnum breytingum 27. maí 2010.
Stjórn Kraftlyftingadeildar Breiðabliks
===
ÚRDRÁTTUR ÚR SETNINGARRÆÐU HR. ÁRMANNS KR. ÓLAFSSONAR – FORSETA BÆJARSTJÓRNAR KÓPAVOGS Á 1. KÓPAVOGSMÓTINU Í BEKKPRESSU, 25. JÚLÍ 2009 :
Það var mikill heiður fyrir Kraftlyftingadeild Breiðabliks að hr. Ármann Kr. Ólafsson, forseti bæjarstjórnar Kópavogs bæjarstjórnar- og bæjarráðsfulltrúi, flutti setningarávarp 1. Kópavogsmóts í bekkpressu 2009 f.h. bæjarstjórnar og bæjarstjóra Kópavogs.
Ármann vék að stofnun Kraftlyftingadeildar Breiðabliks þann 9. febrúar 2009 og að fjölbreyttri stefnumörkun Kraftlyftingadeildar sem felur m.a. í sér „Kraftlyftingaþríþraut æskunnar” sem er keppni 10-13 ára barna í langstökki án atrennu, bekkpressu og boltakasti.
Þá benti Ármann á það að Kraftlyftingadeild Breiðabliks og Kraftlyftinganefnd ÍSÍ (KRAFT) störfuðu nú undir íþróttalögsögu Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ) og lyfjaeftirlitslögsögu Lyfjaeftirlits ÍSÍ.
Það er greinilegt að Ármann fylgist með félagsmönnum Kraftlyftingadeildar Breiðabliks því hann gat sérstaklega um alþjóðaárangurs Auðunns Jónssonar og nú síðast árangur Auðunns á Evrópumeistaramóti í kraftlyftingum 2009 – en þar vann Auðunn bronsverðlaun í réttstöðulyftu.
Þá benti Ármann á athyglisverðan árangur Thelmu Ólafsdóttur (Kraftlyftingadeild Breiðabliks) á Evrópumeistaramóti unglinga 2009 í Svíþjóð en þar vann Thelma fjölda silfur- og bronsverðlauna.
Ármann rifjaði einnig upp íþróttagamansögu úr æsku sinni þegar hann var viðstaddur kraftlyftingamót á Akureyri þar sem Jón Páll Sigmarsson heitinn undirbjó sig með mikilli kostgæfni hvað varðar keppnisútbúnað vel og ítarlega. Það kom Ármanni hins vegar mjög á óvart að „Jói fíra” (Jóhannes Hjálmarsson fyrrum heimsmeistari í öldungaflokki í kraftlyftingum) kom hins vegar inn beint af götunni ásamt öðrum sögufrægum Akureyringum – og hitaði ekkert upp - fleygði frá sér æfingatösku - og hrópaði Jóhann bara: „Getum við ekki farið að byrja!”.
Þá setti Ármann 1. Kópavogsmótið í bekkpressu með miklum glæsibrag og óskaði Kraftlyftingadeild Breiðabliks og keppendum velfarnaðar.
Var gerður mjög góður rómur að setningarræðu hr. Ármanns Kr. Ólafssonar.
Kraftlyftingadeild Breiðabliks þakkar hr. Ármanni Kr. Ólafssyni, forseta bæjarstjórnar Kópavogs bæjarstjórnar- og bæjarráðsfulltrúa, fyrir heiðurinn og viðurkenningu f.h. bæjarstjóra og bæjarstjórnar Kópavogs á starfi Kraftlyftingadeildar Breiðabliks og á Kópavogsmóti í bekkpressu.
KRAFTLYFTINGADEILD BREIÐABLIKS ÞAKKAR ÖLLUM ÞEIM SEM TÓKU ÞÁTT Í UNDIRBÚNINGI OG FRAMKVÆMD 1. KÓPAVOGSMÓTSINS Í BEKKPRESSU – OG ÞÁ EINNIG KEPPENDUM OG ÞJÁLFURUM ÞEIRRA – SVO OG ÁHORFENDUM FYRIR HRESSANDI HVATNINGU.
Það sama gildir að breytum breytanda um 2. Kópavogsmótið - þakkir til allra er að stóðu, dómara, stangarmanna, mótsstarfsmanna, keppenda, áhorfenda, Aðalstjórnar Breiðabliks og til Kópavogsbæjar.
Kraftlyftingadeild Breiðabliks