Íslandsmeistaramótið í bekkpressu
Viku eftir fyrsta mót ársins (Réttstöðulyftumót RIG) fer fram fyrsta mót ársins sem telur til stiga í keppni kraftlyftingafélaga um titilinn "Kraftlyftingafélag ársins 2012", þ.e. Íslandsmeistaramótið í bekkpressu sem fram fer þann 28. janúar 2012 í íþróttamiðstöðinni Jaðarsbökkum á Akranesi. Kraftlyftingafélag Akraness heldur mótið að þessu sinni líkt og síðustu tvö ár. Samhliða mótinu, eða öllu heldur eftir mótið, fer fram hið árlega kraftlyftingaþing Kraftlyftingasambands Íslands (KRAFT).
Breiðablik stefnir að sjálfsögðu að sigri í keppni um titilinn "kraftlyftingafélag ársins" og til þess að það verði að veruleika þarf að fjölmenna á stórmótin með öfluga keppendur í öllum þyngdarflokkum. Margir kraftablikar hafa notað og stefna að því að nota tímann yfir hátíðirnar til undirbúnings og uppkeyrslu fyrir Íslandsmeistaramótið í bekkpressu, þrátt fyrir að ósveigjanleiki opnunartíma í íþróttahúsum Breiðabliks geri mönnum það erfiðara en ella.
Þeir kraftablikar sem stefna á Íslandsmeistaramótið í bekkpressu eru minntir á að hafa samband við Fannar Dagbjartsson um skráningu fyrir 14. janúar. Skráningargjald er 2500 kr.
Til baka