Blikar með góðan árangur á ÍM í bekkpressu
45 kraftlyftingamenn mættu til keppni á Íslandsmeistaramótinu í bekkpressu sem haldið var á Akranesi laugardaginn síðasta (28. janúar). Breiðablik átti 14 keppendur á mótinu.
Í kvenna flokki kepptu þær Dagbjört Lind Orradóttir (-63 kg fl.), Hulda B. Waage (-72 kg fl.) og Jóhanna Þórarinsdóttir (-72 kg fl.). Dagbjört náði 3. sæti í sínum flokki með 65 kg lyftu. Jóhanna tók 1. sæti í -72 kg fl. með glæsilegu Íslandsmeti með 115 kg lyftu í fyrstu tilraun en Hulda átti ekki góðan dag og náði ekki gildri lyftu þann daginn.
Fjölmennasti flokkur mótsins var að þessu sinni -74 kg fl. karla, en þar fór fram æsispennandi keppni milli 10 kraftlyftingamanna. Breiðablik átti tvo keppendur í -74 kg fl., þá Finn Frey Eiríksson og Óla Tómas Freysson. Óli Tómas átti ekki góðan dag og náði ekki gildri lyftu en Finni tókst hins vegar að 132,5 kg. Sú merkilega staða kom þá upp að hann og Dýri Kristjánsson (Zetorum) lyftu nákvæmlega sömu þyngd ásamt því að vera nákvæmlega jafn þungir (71,85 kg). Skv. reglum á þá sá sem tók lyftuna á undan (þ.e. hafði lægra rásnúmer) að raðast hærra í sæti og fékk FInnur því þriðja sætið í -74 kg fl.
Þrír Blikar kepptu í -93 kg fl. karla, það voru þeir Kristján Sindri Níelsson, Heiðar Oddur Orrason og Gísli Baldur Bragason. Kristján náði 2. sætinu með 155 kg lyftu, Heiðar náði 3. sætinu með 152,5 kg og Gísli náði því 4. með 115 kg lyftu.
Í -120 kg fl. karla sigraði Fannar Gauti Dagbjartsson, kraftlyftingamaður ársins 2011, örugglega með Íslandsmetslyftu með 257,5 kg. Auk Fannars kepptu Blikarnir Helgi Pálsson og Daníel Geir Einarsson, sem nýverið skipti yfir frá UMF Selfoss. Daníel tók fjórða sætið með 162,5 kg lyftu, en Helga tókst ekki að fá gilda lyftu.
Sigurvegari yfirþungavigtar, og jafnframt sigurvegari stigaverðlauna karla, var Auðunn Jónsson með 267,5 kg lyftu. Auk Auðuns keppti Vilhjálmur Þór Ólason á sínu fyrsta móti og náði 2. sætinu með 140 kg lyftu.
Til baka