Utandeild

Utandeild - skráning
Körfuknattleiksdeild Breiðabliks mun eins og undanfarin ár standa fyrir Utandeild í körfubolta.
Skráningarfrestur er til 21. október og skal skrá sig með tölvupósti til .(JavaScript must be enabled to view this email address)
Keppnisfyrirkomulag verður ákveðið eftir fjölda þátttökuliða en öll lið fá að minnsta kosti 5 leiki. Leikið verður á föstudagskvöldum í Smáranum á glæsilegu nýju parketgólfi og hefst mótið í nóvember.
Þátttökugjald verður 45.000 og greiðist fyrir fyrsta leik. Innifalið í þátttökugjaldinu er hágæða dómgæsla, ritaraborð og eitt glæsilegasta íþróttahús landsins.