Skráning og greiðsla 2011-2012
Breiðablik hefur tekið í notkun skráningar- og greiðslukerfið Nóra og munu æfingagjöld Körfuknattleiksdeildar verða innheimt í gegnum kerfið* en einnig mun það halda utan um póslista, símanúmer forráðamanna, mætingar og fleira svo mjög mikilvægt er að allir iðkendur séu skráðir inn í kerfið. Smellið hér til að skrá iðkanda og ganga frá greiðslu.
*Athugið að í vefskráningunni er einungis hægt að ganga frá greiðslu með kreditkorti en ef óskað er eftir því að staðgreiða, millifæra inn á reikning eða skipta gjaldinu á greiðsluseðla skal senda skráningu á .(JavaScript must be enabled to view this email address). Þá skráir starfsmaður viðkomandi iðkanda inn í kerfið þegar gengið hefur verið frá greiðslu.
Athugið að niðurgreiðsla Kópavogsbæjar hefur lækkað úr 15.000 kr. í 12.000 kr. á hverja grein og gildir niðurgreiðslan fyrir börn fædd 1994 - 2006.