Meistaraflokkur Kvenna

Nokkrir leikmenn meistaraflokks kvenna við undirritun leikmannasamninga í vor ásamt þjálfara sínum Andra Þór.

Breiðablik hefur endurvakið meistaraflokk kvenna innan félagsins og sendir lið til keppni á ný eftir 3 ára hlé.  Liðið er skipað ungum og efnilegum leikmönnum sem koma ýmist upp úr yngri flokkastarfi félagsins eða hafa gengið til liðs við félagið til að taka þátt í metnaðarfullu starfi.  


Þjálfari meistaraflokks kvenna er Andri Þór Kristinsson en auk þess sér Guðmundur Daði Kristjánsson um styrktar og snerpuþjálfun meistaraflokka félagsins.