Systkinaafsláttur

Reglur Breiðabliks varðandi systkinafslátt eru eftirfarandi:

1. Systkinaafsláttur
a) Systkinaafsláttur gildi jafnt innan deildar og á milli deilda og er til 20 ára aldurs.
b) Annað barn fær a.m.k. 20% afslátt.
c) Þriðja barn fær a.m.k 25% afslátt.

2. Iðkendaafsláttur
a) Iðkandi, sem æfir í 2 deildum eða fleiri fái 20% afslátt í deild númer tvö og þrjú.
b) Iðkandi, sem flyst á milli deilda greiði eitt æfingagjald, sem skiptist á milli deilda í réttu hlutfalli við æfinga-tíma í hvorri deild.

Afsláttur er ekki veittur af styrk Kópavogsbæjar þannig að 20% afslátturinn er reiknaður af 21.000 kr. (31.000 kr. - 10.000 kr. styrkur Kópavogsbæjar) hjá barni nr. 2. Samtals fær barn 2 því 4.500 kr. í afslátt af æfingagjöldum.