18.02 2012 14:23
Frábær æfingaleikur við Fjölni
Minnibolti 10 ára lék æfingaleiki við Fjölni í Lindaskóla í dag. Engin stig voru talin enda leikgleðin og stemmningin í fyrirrúmi hjá þessum aldursflokki. Um 16 strákar æfa reglulega hjá okkur Blikum og varð því að leika á tveimur völlum. Leikirnir voru allir stórskemmtilegir og var gaman að fylgjast með kraftinum og einbeitingunni í strákunum en langflestir í flokknum eru að æfa sinn fyrsta vetur í körfubolta.
Áfram Breiðablik - allténd og ævinlega!