22.02 2012 10:47

Drengjaflokkur úr leik í bikarnum

24. janúar sl. léku strákarnir gegn Fsu í Smáranum og sigruðu auðveldlega 77-52. Leikhlutar í fyrri hálfleik fóru 15-8 og 24-14 og staðan í hálfleik 39-22. Þriðji leikhluti fór 11-16 og sá síðasti 27-15. Snorri Hrafnkelsson var í stuði og setti 24 stig, Ægir Hreinn Bjarnason 16, Ágúst Orrason og Ragnar Björn Óskarsson 8 stig hvor, Ásgeir Nikulásson var með 7 stig, Óskar Ingvarsson og Þórir Sigvaldason 5 stig hvor, Garðar Pálmi Bjarnason og Helgi Freyr Jóhannsson 2 hvor. Eyþór Ellertsson, Haukur Þór Sigurðsson og Kristófer Ríkarðsson léku en settu ekki stig.
7. febrúar var haldið til Njarðvíkur. Strákarnir okkar hófu leik af miklum krafti og eftir fyrsta leikhluta var staðan 5-16 fyrir okkur. Annar leikhluti fór 30-20 og staðan í hálfleik 35-36 og leikurinn í járnum. Njarðvíkingum óx ásmegin og unnu þriðja leikhluta 29-18. Strákarnir léku vel en framlag af bekknum var ekki nógu gott. Staðan fyrir síðasta leikhluta 64-54 og ljóst að drengirnir yrðu að bretta upp ermarnar. Það tókst ekki þrátt fyrir prýðis baráttu og fjórði leikhluti fór 21-20 og lokatölur því 85-74 og bikardraumurinn úti. Þessi lið eiga eftir að leika í deildarkeppninni í Smáranum síðar á keppnistímabilinu. Snorri Hrafnkelsson átti aftur góðan leik og setti 25 stig, Águst Orrason var með 20, Ægir Hreinn Bjarnason 10, Sigtryggur Arnar Björnsson 9, Þórir Sigvaldason 6 og Ragnar Björn Óskarsson 4. Ásgeir Nikulásson, Eyþór Ellertsson, Haukur Þór Sigurðsson, Bjarni Geir Gunnarsson og Kristófer Ríkarðsson léku einnig án þess að skora. Þjálfari drengjaflokks er Skúli Ingibergur Þórarinsson.
 

Til baka