18.04 2012 14:25

Drengjaflokkur kominn í undanúrslit

Drengjaflokkur Breiðabliks er kominn í undanúrslit á Íslandsmótinu í körfuknattleik og leikur þar gegn geysisterku og vel skipuðu liði Keflavíkur. Í þeirra röðum eru fimm-sex leikmenn sem hafa verið í leikmannahópi meistaraflokks félagsins í vetur. Úrslitakeppnin verður að þessu sinni í Njarðvík og eru undanúrslitin á föstudag og úrslitaleikurinn á sunnudaginn. Leikur Breiðabliks og Keflavíkur hefst kl. 20:00. Hinn leikurinn í undanúrslitunum er á milli Njarðvíkur og KR og hefst hann kl. 18:00


Strákarnir léku gegn sameiginlegu liði Hamars frá Hveragerði og Þórs frá Þorlákshöfn í hörkuleik á mánudaginn var í átta liða úrslitum. Leikurinn var allan tímann jafn eins og alltaf þegar þessi lið mætast. Við þó sex til tíu stigum yfir en gestirnir náðu alltaf að klóra í bakkann. Staðan í hálfleik var 44-41 og lokatölur 98-88. Ágúst Orrason fór mikinn í leiknum og setti 40 stig, þar af setti hann niður öll 13 vítin sem hann fékk, tók 10 fráköst og var með 3 stoðsendingar. Ægir Hreinn Bjarnason var með 16 stig og 2 stoðsendingar, Snorri Hrafnkelsson 15 stig, heil 17 fráköst og 2 varin skot, Sigtryggur Arnar Björnsson var með 11 stig, 7 fráköst, 6 stoðsendingar og 1 varið skot, Garðar Pálmi Bjarnason var með 9 stig og 10 fráköst, Ásgeir Nikulásson 5 stig, tók 2 fráköst og átti eina stoðsendingu, Helgi Freyr Jóhannsson var með 2 stig, 1 frákast og 2 stoðsendingar, Þórir Sigvaldason átti 1 stoðsendingu. Eyþór Ellertsson, Haukur Þór Sigurðsson, Óskar Ingvarsson og Ragnar Björn Óskarsson voru einnig í leikmannahópnum.
Þjálfari drengjaflokks er Skúli Ingibergur Þórarinsson.
 

Til baka