20.02 2012 09:58

Knattspyrnuskóli Knattspyrnuakademíu Íslands 5.-22. mars

Knattspyrnuskóli Knattspyrnuakademíu Íslands 5.-22. mars

 

Í mars mánuði stendur Knattspyrnuakademía Íslands fyrir knattspyrnuskóla í Kórnum, stærstu og flottustu knatthöll landsins. Um er að ræða þriggja vikna námskeið sem hefst 5. mars. Hafa námskeið Knattspyrnuakademíunnar verið gífurlega vinsæl í gegnum tíðina og færri komist að en viljað.

 

Útileikmenn

Áhersla verður lögð á einstaklingsmiðaða þjálfun þar sem helstu grunnþættir knattspyrnu verða þjálfaðir en þessir þættir skipta miklu máli fyrir þennan aldurshóp að þjálfa, meðal atriða sem farið verður í eru spyrnur, móttökur, snúningar, skallar auk þess sem farið verður í leiki með bolta.

 

Þjálfarar:

Auðun Helgason, Hans Sævarsson, Sam Tillen, Garðar Jóhannsson, Jóhann Hreiðarsson, Jóhann Ingi Jóhannsson, Ómar Ingi Guðmundsson, Kristín Ýr Bjarnadóttir o.fl.

Markmenn

Markmannsskóli akademíunnar verður enn glæsilegri núna en áður, þar sem landsliðs markmannsþjálfarinn Guðmundur Hreiðarsson og landsliðsmarkmaðurinn Gunnleifur Gunnleifsson munu sjá saman um þjálfunina. Þar verða æfð helstu tækniatriði sem markmenn þurfa að hafa í huga. Upplagt tækifæri fyrir efnilega markmenn sem vilja bæta sig og ná langt.

Eru námskeiðin bæði fyrir stráka og stelpur sem fædd eru 1998 – 2003. Um er að ræða kjörið tækifæri fyrir efnilega knattspyrnuiðkendur sem vilja bæta sinn leik og ná langt. Verður hópnum skipt bæði eftir aldri og getu til að tryggja að allir fái sem mest út úr námskeiðinu.

 

Námskeiðin hefjast mánudaginn 5. mars og standa til 22. mars. Fara æfingarnar fram á mánudags-, þriðjudags- og fimmtudagsmorgnum kl: 06.20 – 07:20.

 

Þátttökugjald á námskeiðin er 14.900 kr. og er innifalið í því morgunhressing.

 

Skráning fer fram á netfanginu: .(JavaScript must be enabled to view this email address)

 

Hægt er að finna allar nánari upplýsingar um námskeiðin á www.knattspyrnuakademian.is

Til baka