09.09 2011 22:25
Íslandsmeistarar 4 fl. A-liða 2011
4fl. karla 1997 árgangur urðu Íslandsmeistar A-liða í dag þegar þeir unnu Keflavík með sannfærandi sigri á aðalvelli Keflavíkur.
Þetta var hörkuleikur, Keflavík komst yfir 1 - 0 en strákarnir voru ekki á því að gefa þetta eftir og þegar fyrri hálfleikur kláraðist var staðan 1 - 2 fyrir blikum.
Með vindinn á móti sér í seinni hálfleik sýndu strákarnir hve sterkir þeir eru og bættu við einu marki og endaði leikurinn 1 -3 fyrir Breiðablik.
Mikill fjöldi foreldra fylgdi liðinu og studdi þá úr stúkunni, eftir leikinn bauð Keflavík strákunum, foreldrum og þjálfurum upp á gómsætt kökuhlaðborð.
Til hamingju með þennan frábæra árangur.