B – lið 4. flokks karla fékk silfurverðlaun á Íslandsmótinu
B – lið 4. flokks karla fékk silfurverðlaun á Íslandsmótinu
Helgina 9.-11. september spilaði B-lið 4. flokks karla til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn.
Liðið byrjaði helgina vel og vann KA sannfærandi 5-1 í Kórnum á föstudagskvöldið. Á laugardaginn kepptu þeir við FH á Smárahvammsvelli og voru 2-1 yfir í hálfleik en voru óheppnir að tapa síðan leiknum 3-2. Á sunnudaginn sýndu strákarnir síðan sitt rétta andlit og áttu frábæran leik á móti Þrótti á Valbjarnarvelli í Laugardal. Unnu sannfærandi 5-0 sigur og tryggðu þar með silfurverðlaun á Íslandsmótinu.
Þessir strákar hafa staðið sig feikilega vel á þessu ári. Urðu í öðru sæti í Faxaflóamótinu í vor og komu sterkir inn í Íslandsmótið og unnu sinn riðil með markatöluna 49-8. Unnu 9 leiki, gerðu eitt jafntefli og töpuðu aðeins einum leik.
Til hamingju með þennan flotta árangur.