03.02 2012 09:15

Nýr aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna

Hans Sævar Sævarsson hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari meistarflokks kvenna hjá Breiðablik. Hans hefur stundað þjálfun frá árinu 2002 fyrst hjá Þrótti en hefur þjálfað ýmsa flokka hjá Breiðablik síðan 2008. Hans er í dag einn af þjálfurum 5 fl. kk. Hann spilaði knattspyrnu til fjölda ára sjálfur lengst af með Þrótti. Hans hefur lokið KSÍ þjálfaragráðu fimm.

Meistaraflokkur kvenna býður hann velkominn til starfa.
 

Til baka