Knattspyrnuskóli Tottenham

Knattspyrnuskóli Tottenham Hotspur
Skráning á .(JavaScript must be enabled to view this email address)

Upplýsingar sem þurfa að koma fram við skráningu:

Senda þarf skráningu á netfangið .(JavaScript must be enabled to view this email address)
- Nafn iðkanda
- Kennitala iðkanda
- Flokkur iðkanda
- Heimilisfang
- Heimasími
- Nafn forráðamanns
- Gsm forráðamanns
- Netfang forráðamanns
- Námskeið:
- Greiðslufyrirkomulag – Greiðslukort (hægt að skipta greiðslum eftir samkomulagi) eða að leggja inn á reikning sjá neðar.
- Gjafabréf: Hvort óskað er eftir því að fá gjafabréf eða ekki.

Verð og greiðslufyrirkomulag:
Verð kr. 19.900- fyrir vikunámskeið.
Athugið að einungis er hægt að skrá hvern iðkanda á eitt námskeið.

Best er að millifæra á reikning 0130-26-411146, kennitala Knattspyrnudeildar Breiðabliks, 410284-1389. Þá er mikilvægt að senda greiðslukvittun á .(JavaScript must be enabled to view this email address) með nafni þátttakanda.
Boðið er upp á gjafabréf fyrir þá sem vilja og þarf þá að taka það sérstaklega fram í skráningu.

---

Nánar um námskeiðin:

Staðsetning:
Æfingasvæði Breiðabliks – Fífan, Fífu- og Smárahvammsvellir.

Dagsetningar:
Námskeið 1: 18. - 22. júní 2012 (5 dagar, 3 tímar í senn)
Námskeið 2: 25. - 29. júní 2012 (5 dagar, 3 tímar í senn)

Námskeiðin verða aldursskipt:
Leikmenn fæddir 1996-1999 kl. 09:00-12:00.
Leikmenn fæddir 2000-2001 kl. 12:30-15:30.

Hvert námskeið er 15 klukkutímar af fótbolta undir stjórn frábærra þjálfara.

Innifalið í námskeiði:
Bolur
Grillveisla í lok námskeiðs.

---

      Breiðablik og Tottenham Hotspur FC hafa gert með sér samkomulag um rekstur knattspyrnuskóla fyrir stráka og stelpur á aldrinum 11 - 16 ára (3. - 5. flokkur) fædd 1996-2001 annað árið í röð.
Breiðablik er fyrsta félagið í Evrópu sem kynnir knattspyrnuskóla Tottenham Hotspur til leiks. Yngri flokka starf þeirra er talið vera eitt það besta á Bretlandseyjum í dag og hefur tekið stórstígum framförum undanfarin 10 ár. Vert er að taka fram að þeir þjálfarar sem koma til landsins í sumar eru starfandi yngri flokka þjálfarar hjá Tottenham Hotspur og til þeirra eru gerðar mikla kröfur varðandi menntun innan knattspyrnufræðanna. Einnig munu okkar hæfu þjálfarar starfa á námskeiðunum.
Fjögur námskeið verða haldin. Ákveðið hefur verið að takmarka fjöldann á hvoru námskeiði við 80 iðkendur þar sem þjálfarar Tottenham Hotspur vilja vinna með smærri hópa til að sinna einstaklingum eins og best verður á kosið.
Með von um að þetta sé byrjunin á einhverju stærra og meira fyrir okkar iðkendur.

Með kveðju,
Unglingráð Knattspyrnudeildar Breiðabliks