17.08 2012 12:47

Einar Sigurðsson, aðstoðardómari á bikarúrslitaleiknum

Einar Sigurðsson, Breiðabliksdómari verður aðstoðardómari á úrslitaleiknum í bikarkeppni karla á milli Stjörnunnar og KR sem fram fer á Laugardalsvelli á morgun. Þetta er einn stærsti leikurinn á tímabilinu hverju sinni í karlaflokki og því eftirsóknarvert að starfa á honum.

Þess má geta að þetta er þriðji úrslitaleikur Einars í bikarkeppni karla enn hann hefur jafnframt verið tvisvar á úrslitaleiknum í kvennaflokki. Breiðabliksdómarar geta því vel náð á toppinn í dómgæslunni ef þeir leggja hana fyrir sig.

Til baka