Æfingagjöld

Smelltu hér til að ganga frá æfingagjöldum

Á fundi stjórnar Knattspyrnudeildar voru eftirfarandi æfingagjöld samþykkt fyrir tímabilið 2012-2013. Sú nýjung hefur verið tekin upp að nú gefst forráðamönnum kostur á að lækka æfingagjöld barnanna með því að vinna á Símamótinu sem haldið er dagana 18. - 21. júlí 2013. Um er að ræða vaktir í mat, gistingu, dómgæslu, úrslitavinnslu, við tjaldstæði og fleira sem til fellur. Ef um systkini er að ræða fjölgar vöktunum sem forráðamaður tekur.

Athugið að ef æfingagjöld eru greidd miðað við vinnu á Símamótinu og forráðamenn taka síðan ekki vaktir á mótinu gjaldfellur strax sú upphæð sem fólst í þátttökunni, 10.000 kr., að viðbættum seðilgjöldum.

Nú er hægt að ganga frá gjöldunum í Nóra – athugið að velja rétt “námskeið” (MEÐ vinnu á Símamóti eða dómgæslu - ÁN vinnu á Símamóti eða dómgæslu).
 

 Flokkur Heildar-
æfingagj.
Með
niðurgr. Kóp.
(ÁN vinnu)
Með
niðurgr. Kóp.
(MEÐ vinnu)
Æfingatímabil
3. fl. 78.300 66.300 56.300 24.09.12-10.09.13
4. fl. 78.300 66.300 56.300 24.09.12-10.09.13
5. fl. 66.500 54.500 44.500 17.09.12-30.08.13
6. fl. 66.500 54.500 44.500 17.09.12-30.08.13
7. fl. 57.000 45.000 35.000 17.09.12-30.08.13
         
Flokkur Heildar-
æfingagj.
Með
niðurgr. Kóp.
(ÁN vinnu)
Önn Æfingatímabil
8. fl. (2007)  10.200 4.200 Haust 2012

10.09.12-20.12.12

8. fl. (2008
og yngri
4.500 - Haust 2012 10.09.12-20.12.12
 
8. fl. (2007) 12.800 6.800 Vor 2013

10.01.13-20.05.13

8. fl. (2008
og yngri
6.500 - Vor 2013

10.01.13-20.05.13

8. fl. (2007) 4.000 - Sumar 2013

01.06.13-20.08.13

8. fl. (2008
og yngri
4.000 - Sumar 2013

01.06.13-20.08.13
 

Systkinaafsláttur

Ef systkini æfa knattspyrnu og eru í 2. - 8. flokki er veittur systkinaafsláttur. Hæsta æfingagjaldið er greitt, annað barn fær 20% afslátt og 25% afsláttur er veittur fyrir þriðja barn. Þeir sem hafa greitt æfingagjöld geta sótt um systkinaafsláttinn með því að senda tölvupóst á .(JavaScript must be enabled to view this email address) og gefa upp kennitölur barnanna og flokka ásamt bankareikningi sem hægt er að leggja afsláttarupphæðina inn á.
Athugið að einnig er hægt að fá systkinaafslátt á milli deilda og er þá sótt um hann líkt og millideildaafsláttinn.

Millideildaafsláttur
Iðkandi, sem æfir í 2 deildum eða fleiri fær 20% afslátt í deild númer tvö og þrjú. Greitt er fullt gjald hjá báðum/öllum deildum og afslátturinn síðan endurgreiddur gegn framvísun greiðslukvittana.
Þeir sem hafa greitt æfingagjöld geta sótt um systkinaafsláttinn með því að senda tölvupóst á .(JavaScript must be enabled to view this email address)  og gefa upp kennitölur barnanna, deild og flokki, ásamt bankareikningi sem hægt er að leggja afsláttarupphæðina inn á.