3. flokkur kvenna Valitor bikarmeistari 2011
Stúlkurnar í 3. Flokki kvenna mættu nágrönnum sínum úr HK í bikarúrslitaleik á miðvikudaginn. Leikurinn fór fram á Kópavogsvelli frammi fyrir fjölda áhorfenda. Það er skemmst frá því að segja að Blikar sigruðu leikinn sannfærandi 6:0. Esther Rós Arnarsdóttir átti stórgóðan dag og skoraði 4 mörk. Ella Dís Thorarensen og Lára Sigurðardóttur voru einnig á skotskónum. Leikurinn var opinn og skemmtilegur og bæði lið misnotuðu meðal annars vítaspyrnu í leiknum. Það er ljóst að Kópavogur á hrúgu af glæsilegum knattspyrnukonum á þessum aldri. Til hamingju með titilinn Blikastelpur og sérstakar hamingjuóskir fá Kitta og Dúfa þjálfarar liðsins sem voru í hátíðarbúningum í tilefni dagsins.
Til baka