18.02 2012 22:04

3. flokkur kvenna Íslandsmeistari í Futsal

Stelpurnar í 3. flokki kvenna kepptu í úrslitum Íslandsmótsins í Futsal á Hvolsvelli í dag.  

Stelpurnar kepptu 4 leiki og unnu þá alla og var markatalan þeirra 13-2.

Eftir að hafa sigrað sinn riðil örugglega kepptu þær í undanúrslitum við lið Tindastóll/Neisti og unnu örugglega 4-0.

Úrslitaleikurinn var svo á móti ÍBV og unnu stelpurnar verðskuldað 1-0 í hörku leik.

Hægt er að sjá úrslit á vef KSI hér.

Til hamingju með titilinn stelpur!

Til baka