1. Umferð getraunaleiks - Enn hægt að skrá sig til leiks
Úrslit fyrstu umferðar eru komin á vefinn. Nú er um að gera að fara þangað til að athuga hvernig gekk.
Ennþá er hægt að skrá sig til leiks svo þú ert ekki orðinn of seinn. Lélegasta tippvikan dettur út þannig að lið sem skráir sig fyrir næstu helgi þarf ekki að missa nein stig.
Til að skrá sig þarf að fara inn á www.tippleikur.is/breiðablik og velja þar nýskráning, eða ýta á þennan link hér.
Það voru þrír hópar sem náðu 11 réttum þessa vikuna en annars var þetta nokkuð jaft. Til að skera úr um sigurvegara umferðarinnar þurfti að grípa til þess að skoða hverjir voru með flesta útileiki rétta þá voru ennþá tveir jafnir og þá var farið í jafnteflin og þá kom í ljós að MC Skvísurnar eru sigurvegarar þessa vikuna. Í verðlaun fá þær 2 blikatreyjur sem verða afhentar í getraunakaffinu á næstkomandi laugardag.
Þess má geta að fyrir þá sem sendu seðlana alla leið í getraunakerfið þá fengust 8.300 kr. fyrir 11 rétta og rúmlega 1.700 kr. fyrir 10 rétta.
Það eru 80 lið nú þegar skráð til leiks og þeim fjölgar dag frá degi. Það er því ljóst að það er gríðarlega skemmtileg keppni framundan.
Við viljum að lokum hvetja ykkur til að tippa tímanlega í næstu umferð. Nýr seðill kemur fljótlega inn á vefinn.
bestu kveðjur
Getraunanefndinn
