21.08 2011 13:00

Karateveturinn byrjar 29. ágúst

ÁHUGASAMIR BYRJENDUR ATHUGIÐ:

Byrjendanámskeiðin hófust í lok ágúst eins og lesa má um hér að neðan. Nú er allt of seint að bætast í hópana sem byrjuðu þá en velkomið að skrá sig á biðlista eftir næstu námskeiðum sem hefjast í janúarbyrjun. Sendið póst á karate@breidablik.is og við látum ykkur vita!

Eldri frétt:

Stundatafla bæði byrjenda og framhaldshópa er kominn inn hér til hliðar. Nær engar breytingar eru frá vorönn en þó bendum við á að það færast samt margir á milli flokka vegna gráðunar. Tökum sérstaklega fram að þeir sem byrjuðu í janúar eru ekki lengur byrjendur heldur fara í flokk sem heitir Börn 2. flokkur. Bendum á að skoða vel aldur og gráðu (belti). Ef einhverjar spuringar eru sendu þá póst á karate@breidablik.is

Ein breyting er þó en hún er sú að á haustönn verður ekki meistaraflokkur unglinga (UM) en það er eingöngu vegna fækkunar í þeim hópi og tilfærslu í fullorðinshóp. Báðir unglingahóparnir (U2 & U1) verða fjölmennir í vetur en það gerir æfingarnar bara skemmtilegri.

Byrjendur börn (6-9 ára) verða með æfingar á miðvikudögum kl. 17:10-18:00 og sunnudögum kl. 11:10-12:00.
NÝTT Miðhópur byrjenda (10-14 ára) verða með æfingar á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 18:00-19:00
Elstu byrjendur (15 ára+) verða með æfingar á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 19:00-20:00 og sunnudögum kl 12:00-13:00


Þá er vert að benda á að búið er að uppfæra upplýsingar um æfingagjöldin hér til hliðar. 

Til baka