21.02 2012 22:43

KARATE BINGÓ

Sunnudaginn 26. febrúar, kl. 14:30 verður haldið stórglæsilegt bingó í veitingasal Smárans til styrktar keppendum karatedeildar Breiðabliks sem halda munu á alþjóðlegt karatemóti í Malmö í Svíþjóð, í lok marsmánaðar.

Mikið verður um dýrðir á þessum óviðjafnanlega viðburði – frábærir vinningar og hefur því verið fleygt að meðal þess sem gestir geta nælt sér í séu brakandi fersk páskaegg frá Nóa Síríus.

Keppnishópurinn verður einnig með veitingar til sölu meðan á bingóinu stendur og er því tilvalið að setja á sig keppnishattinn, kaupa nokkur bingóspjöld, gos, súkkulaði eða bakkelsi og láta reyna á bingóhæfileikana í góðra vina hópi.

Sjáumst hress í Blika-bingó

KARATE BINGÓ

Veitingasal Smárans

Sunnudaginn 26. febrúar, kl. 14:30

Bingóspjald: 250.- kr. stykkið

Veitingar til sölu

Skjöl


Til baka