Fremsta karatekona landsins í Breiðablik
Aðalheiður Rósa Harðardóttir hefur fært sig um set frá Karatefélagi Akraness til okkar Blika. Það er mikill fengur fyrir okkur Blika að fá svo frábæra karatekonu (stúlku) í félagið og alveg ljóst að hún mun efla keppnishluta deildarinnar bæði með eigin árangri og sem verulega góð fyrirmynd. Heiða var kjörin karatekona ársins 2011 og reyndar líka 2010. Hún var önnur í kjöri til íþróttamanns Akraness f. árið 2011. Hér er listi yfir helsta árangur hennar á árinu 2011. Við bjóðum Heiðu innilega velkomna í deildina.
Bikarmeistari kvenna 2010-2011
Íslandsmeistari kata kvenna
Íslandsmeistari í hópkata kvenna
Brons, Norðurlandameistaramót, kata kvenna
Silfur, Norðurlandameistaramót, team kata kvenna
Silfur, Íslandsmeistaramót í kumite -61kg
Silfur, Íslandsmeistaramót í kumite opinn flokkur
Brons, Malmö open, kata senior
Gull, Stockholm open, team kata
Silfur, Stockholm open, kata senior dan
Silfur, Stockholm open, kumite -61kg
Brons, Stockholm open, kata senior open
