Frábær árangur hjá Breiðablik – Íslandsmeistarar unglinga í kata
Sunnudaginn 19.febrúar fór fram Íslandsmeistaramót unglinga í kata. Mótið var mjög vel sótt og mikil aukning var á keppendum frá því í fyrra, í einstaklingsflokkum tóku um 115 keppendur þátt og 25 lið í liðakeppni, Breiðablik hafði titil að verja sem Íslandsmeistari félaga í kata unglinga. Skemmst er frá því að segja, að Blikar fengu 7 Íslandsmeistaratitla og unnu heildarmótið fjórða árið í röð og urðu Íslandsmeistarar félag. Baldur Benediktsson, Laufey Lind Sigþórsdóttir, Hólmgeir Gauti Agnarsson, Kristín Pétursdóttir og Heiðar Benediktsson urðu öll Íslandsmeistarar í sínum aldursflokki en að auki urðu Baldur, Laufey og Heiðar tvöfaldir meistarar þar sem þau voru í hópkataliði sem unnu sína aldursflokka. Í hópkata 12-13 ára voru það Laufey, Baldur og Arna Katrín sem unnu og í elsta hópkataflokknum 16-17 ára voru það Heiðar, Davíð Freyr og Karl Friðrik sem hömpuðu titlinum.
Þess má geta að elstu unglingarnar eru margir hverjir að fara á opna sænska meistaramótið í kata sem fer fram í Malmö 24.mars næstkomandi en sami hópur mun einnig keppa á Íslandsmeistaramóti Fullorðinna í kata sem fer fram 3.mars næstkomandi.
Hér er svo list yfir alla Blika sem fengu verðlaun á unglingamótinu;
Kata piltar 12 ára
3. Daníel Tjörvi Hannesson
Kata piltar 13 ára
1. Baldur Benediktsson
Kata stúlkur 13 ára
1. Laufey Lind Sigþórsdóttir
2. Arna Katrín Kristinsdóttir
Kata piltar 14 ára
1. Hólmgeir Gauti Agnarsson
3. Jökull M Þrastarson
Kata stúlkur 14 ára
2. Katrín Kristinsdóttir
Kata stúlkur 15 ára
1. Kristín Pétursdóttir
Kata piltar 16-17 ára
1. Heiðar Benediktsson
2. Davíð Freyr Guðjónsson
3. Karl Friðrik Schiöth
Hópkata táninga 12 og 13 ára
1. Arna Katrín Kristinsdóttir, Baldur Benediktsson, Laufey Lind Sigþórsdóttir
Hópkata táninga 14 og 15 ára
3.Hólmgeir Gauti Agnarsson, Aron Breki Heiðarsson, Hlynur Bjarnason
Hópkata táninga 16 og 17 ára
1.Davíð Freyr Guðjónsson, Heiðar Benediktsson, Karl Friðrik Schiöth
Seinna um daginn fór svo fram Íslandsmeistara barna í kata. Yfir 150 krakkar og 40 lið mættu til leiks. Þar voru margir blikar að stíga sín fyrstu spor á keppnisbrautinni og vorum við mjög stollt af þeim. Tveir blikar fengu verðlaun á barnamótinu, Daníel Dagur Bogason, brons í kata 9 ára og Kristinn Hugi Arnarsson silfur í kata 10 ára.
