Dómaranámskeið í kata
Karatesambandið stendur fyrir dómaranámskeiði í kata föstudaginn 17.febrúar næstkomandi kl. 19:00, í Smáranum, Kópavogi (veitingasal). Helgi Jóhannesson, EKF Referee, sér um námskeiðið. Fyrst verður fyrirlestur og í framhaldi af honum skriflegt próf, að loknu skriflegu prófi verður haldið verklegt próf í sal karatedeildar Breiðabliks. Hægt er að sjá reglugerð um dómara á vef kai ásamt keppnisreglunum og þeim spurningum sem eru til grundvallar á skriflegu prófi. Minnum dómaraefni á að fara yfir shitei kata í sínum stíl ásamt kata úr öðrum stíl.
Endilega látið alla vita, en við þurfum á fleiri dómurum að halda svo mótin geti gengið vel fyrir sig.
p.s. ég minni núverandi dómara á 3gr. reglna um karatedómara; Öll dómararéttindi gilda í þrjú ár en halda verður þeim við með því að sækja námskeið og dæma reglulega á mótum á vegum KAÍ. Dómarar þurfa að dæma minnst tvisvar á ári og meðdómara einu sinni á ári til að halda kata og kumite réttindum sínum. Dómarnefnd má uppfæra réttindi úr B í A án þess viðkomandi farið í nýtt próf ef hann hefur dæmt reglulega og staðið sig á A-stigi. Til að standast skriflegt próf þarf yfir 90% rétt svör til að ná dómararéttindum og yfir 80% rétt svör til að ná meðdómararéttindum. Einnig þarf að standast verklegt próf að mati dómaranefndar. Kata-dómari þarf einnig að kunna eina Shitei kata úr sínum stíl og eina Shitei og grunnkata úr öðrum stíl. Kata-meðdómari þarf að kunna Shitei kata úr sínum stíl og eina grunnkata úr öðrum stíl.
Virðingarfyllst,
Helgi Jóhannesson
Gsm: 841-8321
Varaformaður
Karatesamband Íslands
