18.08 2012 12:42

Stefanía Norðurlandameistari í 400m grindarhlaupi!!

Norðurlandameistari í 400m grindarhlaupi!

Stefanía okkar Valdimarsdóttir var rétt í þessu að landa Norðurlandameistaratitli í 400m grindarhlaupi. Hún hljóp á tímanum 1:00,36m sem er frábær árangur hjá henni. Stefanía átti áður best 1:00,32 þannig að þetta er alveg við hennar besta tíma.

Frjálsíþróttadeild Breiðabliks óskar Stefaníu innilega til hamingju með titilinn og er ákaflega stolt af að hafa hana í sínum röðum.

Heimasíða mótsins er: http://telekonsultarena.se/resultat/live_sat.htm

-ss

Til baka