MÍ aðalhluta lokið
Meistaramót Íslands innanhúss árið 2012 fór fram um nýliðna helgi. Breiðablik endaði í fjórða sæti með 6096 stig alls en ÍR-ingar sem unnu heildarstigakeppnina hlutu 18139 stig alls.
Besta afrek mótsins átti Aníta Hinriksdóttir úr ÍR en hún sigraði 800m hlaup kvenna á tímanum 2:07,86s og hlaut hún 1054 stig fyrir árangur sinn. Besta afrek karlmanns átti Trausti Stefánsson í 200m hlaupi en hann kom í mark á tímanum 21,77s og bætti sinn besta árangur í leiðinni um 0,30s. Hlaut hann 1020 stig fyrir árangurinn.
Öll úrslit eru á http://mot.fri.is/cgi-bin/ibmot/urslitib1807D1.htm
Eftirtaldir Blikar komust á pall:
Arna Ýr Jónsdóttir
2.sæti stangarstökk 3,50 m
Ingi Rúnar Kristinsson
2.sæti stangarstökk 4,50 m
Stefanía Valdimarsdóttir
2.sæti 400m á 56,79 sek.
Sölvi Guðmundsson
3.sæti 60m grind 8,92 sek.
3.sæti hástökk 1,85 m
3.sæti langstökk 6,44 m
Næstkomandi laugardag fer fram bikarkeppni FRÍ innanhúss en Breiðablik, Ármann og Fjölnir munu senda sameiginlegt lið til þeirrar keppni.
-ss