20.08 2011 12:59

Kári Steinn sló 25 ára gamalt met í hálfu maraþoni

Kári Steinn Karlsson, Breiðabliki, setti nýtt Íslandsmet í hálfu maraþoni í dag, þegar hann kom í mark eftir aðeins eina klukkustund, fimm mínútur og þrjátíu og fimm sekúndur.

Fyrra metið átti Sigurður Pétur Sigmundsson, en það var 1:07:09, samkvæmt tilkynningu frá skipuleggjendum Reykjavíkurmaraþonsins. Það met setti Sigurður Pétur árið 1986.
Í dag féll því met sem staðið hefur í 25 ár.


1. Kári Steinn Karlsson, 1:05:35 – nýtt Íslandsmet
2. Daniel Chuchala, Póllandi, 1:09:31
3. Eduardo Callejo Mora, Spánn, 1:14:18


Heimild: mbl

Til baka