29.08 2011 13:09

Ingi Rúnar bætti íslandsmetið í stangarstökki 18-19 ára

Alls voru 177 keppendur skráðir til leiks á Meistaramóti Íslands 15-22 ára sem fram fór á Akureyri um helgina. Keppendur komu frá 19 samböndum og félögum og kepptu þeir samtals í 144 greinum á mótinu, en fjöldi skráninga (afreka) var 818. ÍR var samtals með 52 keppendur skráða til leiks, en UFA næstflesta eða 21. Breiðablik sendi 17 keppendur á mótið.

 

ÍR sigraði stigakeppnina en liðið hlaut 759 stig, en næsta lið á eftir voru heimamenn í Ungmennafélagi Akureyrar með 347,5 stig. Breiðablik endaði í fimmta sæti með 155 stig.

 

Okkar fólk stóð sig frábærlega og kom heim með 11 Íslandsmeistaratitla og 9 Íslandsmeistara.

 

Ingi Rúnar Kristinsson (18-19 ára) bætti Íslandsmetmet Bjarka Gíslasonar í stangarstökki er hann stökk 4,69 m. Met Bjarka var 4,68 m. - glæsilegur árangur hjá Inga Rúnari !

 

Íslandsmeistarar Breiðabliks:

 

Arna Ýr Jónsdóttir (16-17 ára) stangarstökk 3,35

Sindri Hrafn Guðmundsson (16-17 ára) 110m grind 16,30

Sindri Hrafn Guðmundsson (16-17 ára) langstökk 6,14

Sindri Hrafn Guðmundsson (16-17 ára) kringlukast 40,73

Sindri Hrafn Guðmundsson (16-17 ára) spjótkast 64,77

Guðrún María Pétursdóttir (18-19 ára) hástökk 1,63

Stefanía Valdimarsdóttir (18-19 ára) 400m grind 62,04

Ingi Rúnar Kristinsson (18-19 ára) stangarstökk 4,69 Íslandsmet !

Ingi Rúnar Kristinsson (18-19 ára) kringlukast 44,74

Tómas Zoega (18-19 ára) 3000m 9:31,41

Ungkarlar 20-22 ára 4x100m boðhlaup 45,83 (Ingi Rúnar, Kristján Viktor, Ottó, Gunnar Páll)

 

Innilega til hamingju Blikar með flottan árangur !!

Öll úrslit er að finna á: http://mot.fri.is/cgi-bin/ibmot/timesedillib1715.htm

Myndir frá mótinu koma fljótlega inn á myndavefinn

 

-ss 

Til baka