02.10 2011 20:52

Æfingar að fara á fullan skrið

Þá eru æfingar í meistaraflokki að fara aftur af stað. Í meistaraflokki eru iðkendur fæddir 1997 og eldri.

Fyrsta æfing vetrarins verður á mánudaginn, mæta kl. 17:30 í Fífuna.

Fyrst um sinn verða æfingarnar mánudaga-fimmtudaga kl. 17:30-19:00, en eftir því sem starfið kemst á rekspöl má búast við breytingum.

Þjálfarar meistaraflokks verða Jón Sævar, Jón Bjarni, Stefán Ragnar, Kári Steinn, Guðmundur Hólmar, Þórey Edda, Alla María, Sunna Gestsdóttir og Egill Eiðsson.

Stefnt er á fund með iðkendum nk. fimmtudag, kl. 19:15. Þar gefst tækifæri til að ræða starfið í vetur.

Sjáum ykkur vonandi sem flest á fyrstu æfingunum.

 

-ss

Til baka