28.08 2012 10:24

Bikarkeppni FRÍ

ÍR sigraði þrefalt í 47. Bikarkeppni FRÍ, sem fram fór á Þórsvelli á Akureyri um síðustu helgi. ÍR hlaut samtals 184 stig, 97 stig í karlaflokki og 87 stig í kvennaflokki. Þetta er í fyrsta sinn í um tvo áratugi sem ÍR vinnur þrefaldan sigur í Bikarkeppninni. Í öðru sæti í hinni sameiginlegri keppni var FH með 159 stig og lið Norðlendinga varð í þriðja sæti með 147,5 stig. HSK varð í fjórða sæti með 124,5 stig eftir jafna baráttu við Breiðablik sem hlaut 121 stig.

Í kvennaflokki voru stigaúrslit þessi:
1. ÍR 87 stig
2. Norðurland 77,5
3. FH 76
4. HSK 64,5
5. Breiðablik 55

Í karlaflokki voru úrslit þessi:
1. ÍR 97 stig
2. FH 83
3. Norðurland 70
4. Breiðablik 66
5. HSK 60

Samanlögð stig
1. ÍR 184 stig
2. FH 159
3. Norðurland 147,5
4. HSK 124,5
5. Breiðablik 121

Breiðablik sendi 22 keppendur á mótið og stóðu þeir sig allir með sóma. Við erum með ungt lið og á mörkum að unnt sé að búa til heilsteypt lið fyrir mót sem þetta en það tókst með samstilltu átaki.


Öll úrslit er að finna hér: http://mot.fri.is/cgi-bin/ibmot/urslitib1945D1.htm

Myndir eru á myndasíðu frjálsra: https://picasaweb.google.com/blikarfrjalsar/2012BikarAkureyri#

-ss
 

Til baka