22.05.2010 14:05 | Körfubolti
Tveir hlutu viðurkenningu
Aðalfundur Breiðabliks fór fram í vikunni og var um góðan fund að ræða. Venju samkvæmt var þar liður á dagskrá hvar viðurkenningar eru veittar fyrir vel unnin störf í þágu félagsins.
Tveir frá körfuknattleiksdeildinni fengu viðurkenningu að þessu sinni; Pétur Hrafn Sigurðsson, fyrrum formaður deildarinnar, hlaut félagsmálabikarinn og Sigurður Ingi Hauksson, varaformaður, fékk silfurmerki Breiðabliks.
Körfuknattleiksdeildin óskar þeim til innilega hamingju með að hafa hlotið vegtyllur þessar.
GFG

Breiðablik, ungmennafélag | Dalsmári 5 | 201 Kópavogur | sími: 510 6400 | breidablik@breidablik.is