21.05.2010 16:05 | Körfubolti
Daníel í Garðabæinn
Daníel Guðmundsson, leikmaður meistaraflokks karla, hefur ákveðið að færa sig um set og hengja hatt sinn í Garðabænum á næsta keppnistímabili.

Daníel hefur leikið með Blikum undanfarin tvö ár en er uppalinn Njarðvíkingur. Í nágrannasveitarfélagi okkar hittir kappinn fyrir gamlan lærisvein, Teit Örlygsson, sem nú þjálfar Garðbæinga.  

Daníel lék vel með Blikum í vetur og var kjörinn leikmaður ársins á uppskerhátíð deildarinnar fyrir skömm.

Körfuknattleiksdeildin þakkar honum framlag sitt síðastliðin tvö ár og óskar honum velfarnaðar í Garðabænum.





GFG


Breiðablik, ungmennafélag | Dalsmári 5 | 201 Kópavogur | sími: 510 6400 | breidablik@breidablik.is