Sumarnámskeið Breiðabliks

Í sumar verður boðið upp á Ævintýranámskeið, Knattspyrnuskóla, Karatenámskeið ( sjá Karatedeild ) og Körfuboltaskóla á félagssvæði Breiðabliks í Smáranum. Í sundlaugum Kópavogs verður boðið upp á sundskóla og Taekwondodeildin verður með námskeið í Kópavogsskóla ( sjá Taekwondodeild )

Að þessu sinni eru námskeiðin byggð þannig
upp að auðvelt er að samræma námskeiðin og búa til dagskrá
sem hentar hverjum og einum, t.d. vera á ævintýranámskeiði eða
körfuboltaskóla fyrir hádegi og í knattspyrnuskóla eftir hádegi.
Börn á öllum námskeiðunum hafa kost á að fá heitan mat í hádeginu og einnig er hægt að kaupa gæslu frá 8.00-9.00 og 16.00-17.00.
Hægt er að skrá börn á námskeið og í gæslu frá og með 2. maí með því að senda
tölvupóst á netfangið .(JavaScript must be enabled to view this email address) eða hringja í síma
510-6400. Veittur er 20% systkinaafsláttur


Ævintýranámskeið
Alla virka daga kl. 9:00 – 16:00.
Fyrir börn á aldrinum 6 til 12 ára (f. 1999 - 2004)
1. námskeið 7. – 10. Júní (ath 4 dagar vegna skólaslita)
2. námskeið 14. - 16. Júní (ath 3 dagar vegna Hvítasunnu og 17. Júní)
3. námskeið 20. – 24. júní
4. námskeið 27. júní – 1. júlí
5. námskeið 4. – 8. júlí
6. námskeið 11. – 14. júlí. (ath. 4 dagar vegna Símamóts)

Boðið er upp á fjölbreytta dagskrá tengda íþróttum og útivist.
Umsjón er í höndum fagfólks
við einhverjar bestu aðstæður sem finnast hér á landi.

Hægt er að velja um að vera allan daginn (kl. 9:00 - 16:00), fyrir
hádegi (kl. 9:00 - 12:00) eða eftir hádegi (kl. 13:00 – 16:00). Þau börn
sem eru allan daginn geta keypt heitan mat í hádeginu. Hægt er að kaupa
hádegismat aukalega fyrir þau börn sem eru hálfan daginn og
kostar hann kr. 500 á dag (kl. 12:00 - 13:00).

Verð fyrir vikunámskeið
Heill dagur með mat (kl. 9:00-16:00) kr. 12.500
Hálfur dagur með mat (kl. 9:00-13:00/12:00-16:00) kr. 7.500
Hálfur dagur án matar (kl. 9:00-12:00/13:00-16:00) kr. 5.000

Gæsla
Boðið verður upp á gæslu kl. 8:00 - 9:00, kl. 12:00 - 13:00 fyrir
hálfsdagshópa og kl. 16:00 - 17:00. Gæslan kostar kr. 300 á klst.


Knattspyrnuskóli
Knattspyrnudeild Breiðabliks mun í sumar vera með knattspyrnuskóla sem tekur mið af barna- og unglingaþjálfun félagsins.
1. námskeið 7. – 10. Júní (ath 4 dagar vegna skólaslita)
2. námskeið 14. - 16. Júní (ath 3 dagar vegna Hvítasunnu og 17. Júní)
3. námskeið 20. – 24. júní
4. námskeið 27. júní – 1. júlí
5. námskeið 4. – 8. júlí
6. námskeið 11. – 14. júlí. (ath. 4 dagar vegna Símamóts)
7. námskeið 8. – 12. ágúst

Í sumar verður boðið upp á námskeið eftir hádegi, frá 13:00-16:00 alla virka daga. Námskeiðin eru fyrir börn á aldrinum 6 til 14 ára (f. 1997 – 2004) og á öllum námskeiðunum verður börnunum skipt í hópa eftir aldri.

Stór hluti barna hjá Breiðabliki yngri en 14 ára æfir fyrir hádegi. Tilvalið er að skella sér í hádegismat hjá Breiðabliki að lokinni æfingu og fara síðan þaðan í knattspyrnuskólann.

Gæsla og hádegismatur:
Boðið verður upp á gæslu kl. 12:00-13:00, og kl. 16:00-17:00. Gæslan kostar kr. 300 á klst. Hægt er að kaupa hádegismat aukalega og kostar hann kr. 500 á dag. Verð fyrir vikunámskeið kr. 5.000
Skólastjóri er Arnar Bill Gunnarsson íþróttafræðingur með UEFA-A þjálfaragráðu. Arnar er yfirþjálfari yngri flokka Breiðabliks.
Aðalþjálfariá námskeiðunum verður Kristinn Sverrisson en hann þjálfar einnig 5. flokk og 3. flokk drengja hjá Breiðabliki. Á hverju námskeiði munu leikmenn úr meistaraflokkum félagsins kíkja í heimsókn og spila fótbolta við börnin.

Gert er ráð fyrir að börnin taki með sér hollt nesti.

Æfingatafla sumarsins fyrir knattspyrnuæfingar yngri flokka verður
birt á heimasíðu Breiðabliks www.breidablik.is.

 

Körfuboltaskóli – ein vika ókeypis
Körfuknattleiksdeild Breiðabliks býður upp á körfuboltaskóla fyrir börn fædd 1998-2005. Skólinn er rekinn á tímabilinu 9:00 – 12:00 virka daga og er í Smáranum. Hægt er að koma með börnin kl. 08:00 í flest námskeiðanna því barnagæsla er á staðnum til 9:00. Sama á við í hádeginu en þá er einnig hægt að kaupa hádegismat.. Körfuboltaskólinn er bæði fyrir þá sem hafa gaman að körfubolta eða þá sem langar bara að prufa eina og eina viku.
Öllum börnum í Kópavogi fæddum 1998-2005 er boðið að mæta í Körfuboltaskólann ókeypis í eina viku.
Kennd verða grunnatriði körfuknattleiks bæði með æfingum og því að fara í ýmsa leiki s.s. “kílókörfu” og “varpa bolta” og hinn sívinsæla spilaleik. Um er að ræða mjög lifandi og skemmtilegt námskeið sem notið hefur mikilla vinsælda undanfarin ár. Ef veður er gott verður farið út. Verð fyrir vikunámskeið er 5.000 kr. Verð fyrir gæslu og hádegismat; sjá Knattspyrnunámskeið og Ævitýranámskeið.

1. námskeið 7. – 10. Júní (ath 4 dagar vegna skólaslita)
2. námskeið 14. - 16. Júní (ath 3 dagar vegna Hvítasunnu og 17. Júní)
3. námskeið 20. – 24. júní
4. námskeið 27. júní – 1. júlí
5. námskeið 4. – 8. júlí
6. námskeið 11. – 14. júlí. (ath. 4 dagar vegna Símamóts)

7. námskeið 2. – 5. ágúst
8. námskeið 8. – 12. ágúst


Sumaræfingar verða í boði fyrir núverandi og nýja iðendur í körfuknattleik. Á sumaræfingum verða einstaklingsmiðaðar séræfingar fyrir iðkendur sem miða að því að bæta og styrkja viðkomandi iðkenda í íþróttinni þannig að hann/hún mæti vel undirbúin fyrir veturinn.
Sumaræfingar eru fyrir einstaklinga fædda á árunum 1997, 1998, 1999, 2000. Æfingar verða á mánudögum til fimmtudaga frá kl.13:00 til 15:00 í Smáranum. Verð á viku fyrir iðkendur er 2500 kr.
Sumaræfingar hefjast þriðjudaginn 7. júní og verða í júní, júlí og ágúst..


 Sunddeild Breiðabliks býður í sumar upp á sundnámskeið í Sundskóla Breiðabliks
í júní og júlí.
Líkt og áður sjá reyndir og traustir kennarar um kennsluna, ásamt aðstoðarfólki í laug.
Aðstoðarfólkið fylgir börnunum í gegnum búnings- og baðklefa.
Fyrsta námskeiðið hefst 9. júní og því síðasta lýkur 22. júlí.