Íþróttaskóli Breiðabliks
Íþróttaskóli 3-6 ára barna er starfræktur á veturna í Íþróttahúsi Breiðabliks í Smáranum.
14.janúar byrjaði 11 vikna námskeið undir stjórn Önnu Kristínar Sveinsdóttur leikskólakennara, sem hefur sér til aðstoðar m.a. þá Aðalstein Jónsson og Sverrir Óskarsson. Námskeiðið er ætlað 3-5 ára börnum ( fædd 2007, 2008 og 2009 ) og fullt námskeið kostar 7700 , en hægt er að kaupa stakan prufutíma á 1000 kr. Þá er einnig hægt að byrja síðar og er þá reiknað upp verð fyrir þá tíma sem eftir er, en gott er að mæta tímanlega til að ganga frá skráningur og greiðslu í afgreiðslunni í Smáranum. Ekki er skráð í síma eða með öðrum hætti og engin þörf að panta, heldur mæta og hafa gaman með krökkunum, en foreldrar taka góðan þátt í þessu með krökkunum. Frekari upplýsingar má fá hjá okkur í síma 510-6400
Yngri börnin ( fædd 2009 )mæta kl. 10:00 og eru til 11:00, þá koma þau eldri og eru frá 11:00 til 12:00
Best er að skrá barn í skólann og ganga frá greiðslu í gegnum Nóra, skráningar- og greiðslukerfið sem Breiðablik var að taka í notkun og er það gert hér, gott er þá að hafa útprentaða greiðslukvittun meðferðis til staðfestingar á greiðslu.
Einnig er hægt að ganga frá skráningu og greiðslu við komu í skólann á laugardaginn.
Börnin fá afhentan bol þegar búið er að ganga frá greiðslu.
---
Íþróttaskóli hefur verið starfræktur á vegum Breiðabliks frá fyrsta starfsári hússins árið 1994. Fyrsti skólastjóri og helsti hvatamaður að stofnun skólans var Anton Bjarnason, lektor við Kennaraháskóla Íslands. Allt frá upphafi hefur Breiðablik lagt metnað sinn í að þau börn sem þangað koma njóti leiðbeininga færustu aðila; íþróttakennara, leikskólakennara og grunnskólakennara.
Í skólanum leggjum við áherslu á að þessi fyrstu kynni barna af íþróttahúsum séu jákvæð og að þeim líði vel inni í íþróttasalnum enda er það forsenda þess að börn haldi áfram að iðka íþróttir. Það er mjög mikilvægt að okkar mati að börnin finni þörf til þess að hreyfa sig og að þau njóti þess að vera í hreyfistund í íþróttasalnum. Rannsóknir hafa líka sýnt fram á að staðgóð grunnþjálfun þar sem áhersla er lögð á alhliða líkams- og hreyfiþroska og jákvætt umhverfi hefur mjög mikla og jákvæða þýðingu fyrir einstaklinginn þegar fram í sækir.
Einnig er nauðsynlegt að börnin fái hvíld og slökun í lok slíkra leikja, þannig að þau skynji muninn á spennu og slökun. Íþróttaskólinn er tilvalinn vettvangur til þess að undirbúa börnin fyrir hinar hefðbundnu íþróttagreinar.
Allar nánari upplýsingar um íþróttaskólann má fá í íþróttahúsinu Smára, í síma 510 6400.