Greiðsla æfingagjalda

Æfingagjöld verða innheimt í gegnum kerfið Nóra

Æfingagjöld 2011-2012

Breiðablik hefur tekið í notkun skráningar- og greiðslukerfið Nóra og munu flestar deildir nýta sér kerfið. Æfingagjöld verða innheimt í gegnum kerfið* en einnig mun það halda utan um póslista, símanúmer forráðamanna, mætingar og fleira svo mjög mikilvægt er að allir iðkendur séu skráðir inn í kerfið.

Skráning í Sunddeildina er nú þegar hafin og munu aðrar deildir fylgja í kjölfarið á næstu dögum. Verður það tilkynnt í hverri deild.

Athugið að niðurgreiðsla Kópavogsbæjar hefur lækkað úr 15.000 kr. í 12.000 kr. á hverja grein og gildir niðurgreiðslan fyrir börn fædd 1994 - 2006.
Að öðru leyti verður fyrirkomulagið eins og síðustu ár, sjá upplýsingar frá síðasta tímabili (2010-11) á heimasíðu Kópavogsbæjar: http://www.kopavogur.is/thjonusta/tomstundir/tomstundastyrkir/

Skráning og greiðsla æfingagjalda - bara komið inn fyrir sunddeildina:
https://breidablik.felog.is

Nýskráning forráðamanns:
Einfalt er að skrá sig inn í kerfið og er það gert með því að fara á síðuna https://breidablik.felog.is og smella á "Nýskráning" fyrir neðan innskráningargluggann (einungis 18 ára og eldri geta skráð sig inn). Þar setur forráðamaður inn grunnupplýsingar: kennitölu, netfang og gsm númer og velur lykilorð. Forráðamenn geta alltaf farið aftur inn í kerfið og breytt þessum grunnupplýsingum. Hægt er að fá nánari upplýsingar á .(JavaScript must be enabled to view this email address).

Þegar þessu er lokið opnast gluggi með yfirliti yfir iðkendur í fjölskyldunni. Ef barnið er ekki á listanum skal ýta á "Nýr iðkandi", velja barnið í flettivalmyndinni og skrá. Þegar iðkandinn hefur verið skráður er ýtt á "Námskeið/flokkar í boði" og þar er réttur hópur valinn.

*Athugið að í vefskráningunni er einungis hægt að ganga frá greiðslu með kreditkorti en ef óskað er eftir því að staðgreiða, millifæra inn á reikning eða skipta gjaldinu á greiðsluseðla skal senda skráningu á .(JavaScript must be enabled to view this email address) með eftirfarandi upplýsingum. Þá skráir starfsmaður viðkomandi iðkanda inn í kerfið þegar gengið hefur verið frá greiðslu.

Nafn iðkanda: x
Kennitala iðkanda: x
Heiti námskeiðs/æfingahóps: x
Greiðslufyrirkomulag: staðgreiðsla/millifærsla/skipta á greiðslukort

Þeir sem hafa fyrirspurnir um æfingagjöld, greiðsluseðla, greiðsludreifingu, styrk frá Kópavogsbæ eða öðrum bæjarfélögum, afslætti o.fl. eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við Sigrúnu Gunnarsdóttur (Sissu) í tölvupósti á .(JavaScript must be enabled to view this email address) og láta kennitölu greiðanda, nafn iðkanda, kennitölu og deild fylgja með í tölvupóstinum.

Hvernig sæki ég um systkina- og millideildaafslátt?
Iðkendur sem stunda fleiri en eina íþrótt í félaginu fá afslátt af æfingagjöldum. Greitt er hjá báðum (öllum) deildum og kvittanir/upplýsingar um greiðslur sendar á .(JavaScript must be enabled to view this email address). Systkini sem æfa sitthvora íþróttina í félaginu ávinna sér einnig afslátt á milli deilda.

Upplýsingar sem þurfa að koma fram:

BARN 1 (Nafn og kennitala): x
Íþróttagrein 1: x
- Upphæð æfingagjalda: x
- Dags. greiðslu: x
- Kennitala greiðanda: x
Íþróttagrein 2:
- Upphæð æfingagjalda x
- Dags. greiðslu: x
- Kennitala greiðanda: x
o.s.frv.

BARN 2 (Nafn og kennitala): x
Íþróttagrein 1: x
- Upphæð æfingagjalda: x
- Dags. greiðslu: x
- Kennitala greiðanda: x
Íþróttagrein 2: x
- Upphæð æfingagjalda: x
- Dags. greiðslu: x
- Kennitala greiðanda x
o.s.frv. 

Til baka