Tyr mót Ægis um helgina

 

Nú um helgina fer fram Tyr mót Ægis í laugardalslaug. Breiðablik teflir fram 27 keppendum úr A og B hópum félagsins. Þetta er fyrsta mótið sem sundmenn frá Breiðabliki fara á undir stjórn nýs yfirþjálfara, Örnu Þóreyjar Sveinbjörnsdóttur og verður spennandi að fylgjast með árangri okkar krakka.

Á eftirfarandi slóð er búið að birta keppendalistann:http://aegir.is/images/stories/skjol/11-12/tyrmot/tyrmot_2011_keppendalisti.pdf
Á heimasíðu Ægis verður einnig hægt að fylgjast með beinum úrslitum:http://aegir.is/index.php?option=com_content&view=frontpage&Itemid=57

Við  vonum að sem flestir foreldrar sjái sér fært að koma og hvetja krakkana okkar á þessu fyrsta móti sundársins. Þau hafa öll staðið sig frábærlega á æfingum undanfarið og munu án efa standa sig mjög vel á þessu móti. 

Frekari upplýsingar um mótið má fá á heimasíðu Ægis: http://www.aegir.is/ eða hjá formanni sunddeildar (.(JavaScript must be enabled to view this email address)) og yfirþjálfara (.(JavaScript must be enabled to view this email address)