Nýr samningur um Símamótið undirritaður

Tryggvi Hafstein formaður unglingaráðs Breiðabliks og Sævar Freyr Þráinsson forstjóri Símans, handsala samninginn

Síminn og Breiðablik undirrituðu á miðvikudaginn nýjan samning um Símamótið. Símamótið hefur verið haldið síðan árið 2005 og er fyrir stelpur í 5., 6. og 7. flokki. Mótið er eitt það stærsta sem haldið er á hverju sumri og hefur vaxið ár frá ári, en í fyrra var metþátttaka þegar rúmlega 1600 keppendur voru skráðir til leiks.

Samningurinn er til þriggja ára og er Síminn eini styrktaraðili mótsins. Hér sjást Tryggvi Hafstein, formaður unglingaráðs Breiðabliks og  Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Símans,  takast í hendur eftir undirritun.