Afreksskóli Breiðabliks
Markmið skólans er að skapa topp afreks umhverfi, aðstöðu og umgjörð fyrir efnilegasta íþróttafólk Breiðabliks. Í framhaldi af því er vonast til að nemendur skólans þróist úr því að vera efnilegt íþróttafólk í afreksíþróttafólk. Einnig mun skólinn standa fyrir fyrirlestrum fyrir alla iðkendur félagsins og foreldra þeirra og einnig fræðslu og fyrirlestrum fyrir þjálfara félagsins.
Verkefnið er keyrt þvert á félagið, þ.e.a.s. allar deildir/íþróttagreinar innan Breiðabliks taka þátt í verkefninu. Skólinn er fyrir iðkendur sem eru 16 ára og eldri.
Aðalstjórn Breiðabliks hefur ráðið tvo starfsmenn til að stýra skólanum, en það eru þeir Arnar Bill Gunnarsson sem er yfirþjálfari yngri flokka Breiðabliks í knattspyrnu og Jón Sævar Þórðarson sem er yfirþjálfari Frjálsum íþróttum hjá Breiðabliki.
Settar hafa verið viðmiðunarreglur um inntökuskilyrði í Afreksskólann
Reglur fyrir einstaklingíþróttir:
Miðað skal við afreksviðmið hvers sérsambands fyrir sig, þar sem það á við. Lágmarksskrafa er þó að íþróttamaðurinn sé í allra fremstu röð á landinu í sinni grein.
Reglur fyrir hópíþróttir:
Miðast er við að iðkandinn sé í landsliðhópi í sinni íþrótt.
Sú þjónusta sem Afreksskólinn bíður upp á er eftirfarandi:
• Sér nemendum fyrir sem bestri aðstöðu til að ná topp árangri í sinni grein.
• Sér nemendum fyrir eftirliti og ráðgjöf læknis í tengslum við íþróttaiðkunn þeirra. Böðvar Sigurjónsson er læknir Afreksskólans.
• Sér nemendum fyrir eftirliti og ráðgjöf sjúkraþjálfara í tengslum við íþróttaiðkunn þeirra. Afreksskólinn hefur samið við Sjúkraþjálfun Kópavogs um að stöðin annist iðkendur skólans.
• Sér nemendum fyrir kennslu og einstaklingsráðgjöf í íþróttasálfræði. Einar Gylfi Jónsson er íþróttasálfræðingur Afreksskólans.
• Sér nemendum fyrir kennslu og einstaklingsráðgjöf í næringarfræði. Fríða Rún Þórðardóttir er næringarfræðingur Afreksskólans.
• Aðstoðar nemendur við markmiðssetningu og fylgist með aðstoðar eftir megni við að ná fram settum markmiðum
- Býður upp á séræfingar í styrktar- liðleika og sprengikrafsþjálfun sé þess óskað.
Afreksskólinn mun einnig;
-Bjóða öllum iðkendur og ef við á foreldrum upp á fyrirlestra sem styrkja og fræða þá sem íþróttaiðkendur hjá Breiðabliki.
-Heldur reglulega fyrirlestra og fræðslu fyrir alla þjálfara félagsins með það að markmiði að auka gæði í þjálfun í félaginu öllu.